Viltu fasteignir kynna fjölbýlishús við Hverfisgötu 101, Reykjavík. Vel staðsetta eign með mikla möguleika í göngufjarlægð frá Hlemmi og Laugaveginum.
Þrjár íbúðir á verði einnar.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100 [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939 [email protected]
Vel staðsetta eign með mikla möguleika í göngufjarlægð frá Hlemmi og Laugaveginum.
Þrjár íbúðir á verði einnar.
Íbúðin sjálf er skráð 78,2 fm. og er merkt 201. Búið er að skipta íbúðinni á hæðinni í tvær íbúðir með sameiginlegu baðherbergi, með sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurkara.
Á efstu hæð hússins er geymsluloft sem er ekki inni fermetratölunni og er búið að innrétta sem ósamþykkta íbúð.
Nánari lýsing eignar:
Íbúð I er með rúmgóðu svefnherbergi, eldhúsi með borðkrók í setustofu.
Íbúð II er með stóru eldhúsi og rúmgóðu svefnherbergi. Útgengt er á svalir úr
svefnherberginu.
Íbúð III er í risi og skiptist í eldhús með borðkrók í setustofu, rúmgott svefnhverbergi og baðherbergi sem er nýlega uppgert.
Tengi fyrir þvottavél og þurkara er á sameiginlega baðherberginu á hæðinni.
Mjög áhugaverð eign með mikla möguleika sem vert er að skoða.
Frábær kaup fyrir réttan aðila.
Bakgarður hússins er “skráð sem hestakerrustæði” en hefur verið í notkun sem bílastæði fyrir eigendur. Óformlegt samkomulag kveður á um að eitt bílastæði fylgir íbúðinni.
Í sameign er sér geymsla og sameiginlegt þvottahús.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.