Viltu fasteignir kynna Maríugötu 1 sem er 103,4m2 4ra herbergja íbúð á fimmtu hæð ásamt stæði í bílageymslu.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.
Íbúðin er í útleigu og geta frábærir leigjendur fylgt með ef það hentar.
Seljandi skoðar að taka snyrtilega ódýrari eign uppí.
Íbúðin er falleg og björt 4ja herbergja á 5. hæð í vönduðu, nýlegu lyftuhúsi í Urriðaholti. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og svalir. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Eignin er skráð 103.4m2 og skiptist í 98,7m2 íbúð og 4,7m2 sér geymslu í sameign. Auk þess eru 7m2 svalir sem ekki telja með í skráðum fermetrum.
Fallegt planka harðparket á öllu nema baðherbergi og þvottahúsi sem eru flísalögð.
Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu/gang og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Góður innbyggður fataskápur er í forstofu
Stofa/borðstofa: Samliggjandi í opnu og björtu rými. Frá stofu er gengið út á svalir. Fallegt útsýni til þriggja átta.
Svalir: Út frá stofu eru 7m2 svalir til suðvesturs.
Eldhús: Eyja aðskilur eldhús frá alrými. Innbyggð uppþvottavél, blástursofn, spanhellurborð og góður háfur. Vönduð heimilistæki frá AEG.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum. Góð "labb-inn" sturta, Innbyggt upphengt klósett og handklæðaofn.
Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með innbyggðum stórum fataskáp.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart með innbyggðum fataskáp.
Herbergi 3: Bjart og gott herbergi.
Þvottahús: Innan íbúðar er sér þvottahús með ræstivaski og plassi fyrri þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Í sameign í kjallara er 4,7m2 geymsla sem fylgir íbúðinni.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir. Auðvelt að koma fyrir rafbílahleðslu.
Í sameign er einnig sameigninleg hjólageymsla.
Stutt lýsing húss:
Maríugata 1. Er stórglæsilegt og einstaklega flott hannað 24 ibúða fjölbýlishús á sex hæðum.
* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar og hvítar og svartar
* Fataskápar eru hvítir með svörtum höldum frá Parka.
* Innbyggður ísskápur m. frysti, span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG, vifta frá Gíra
* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.
* Úti Inni arkitektar sér um alla hönnun á húsi
Staðsetning: Húsið er vel staðsett nálægt Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Örstutt er í leikvöll með ærslabelg, fótboltavelli, körfuboltavelli og fleiru.
Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / [email protected] eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / [email protected]
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.