Viltu fasteignir kynna: Fallegt 84,4 fm endaraðhús á einni hæð innst í botnlanga við Breiðuholt 28, Vogum.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með góðri þvotta aðstöðu og geymslu.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
LÝSING:
Forstofa: Rúmgóð með fataskápum, flísar á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri H.T.H innréttingu og með vönduðum AEG tækjum, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á fallega 40fm timburverönd.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, handklæðaofni, vandaðri innréttingu við vask, “walk in” sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.