Viltu fasteingir kynna: Glæsilega þriggja herbergja íbúð í nýlegu fjölbýli við Skipholt 11-13. Sérinngangur af svölum, tvö rúmgóð herbergi, eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Stórar svalir með útgengi úr stofu og hjónaherbergi. Stórkostlegt útsýni yfir borgina. Bílskúr og sérmerkt bílastæði fylga eigninni. Samkvæmt skráningu hjá Þjóðskrá Íslands er íbúð númer 403 samtals 142,7 fm, sem skiptist í íbúð 104,3fm, þar af er geymsla 7,6fm og bílskúr 38,4fm
Þetta er eign í sérflokki, björt og falleg með glæsilegum innréttingum Vel staðsett í göngufæri við miðborgina, falleg útivistarsvæði í Laugardalnum og meðfram sjónum.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Forstofa: er rúmgóð með fataskáp. Flísar eru á gólfi.
Eldhús: er með fallegri dökkri innréttingu og flísum á milli skápa. Ofn í vinnuhæð, stór eyja með granit borðplötu og möguleiki á að sitja við eyjuna. Parket er á gólfi.
Stofa/borðstofa: er björt með útgengi á suður svalir og einstaklega fallegu útsýni. Parket er á gólfi.
Svefnherbergi: er rúmgott með stórum fataskáp og útgengi á svalir. Parket er á gólfi.
Herbergi: er rúmgott með góðum fataskáp. Parket er á gólfi.
Baðherbergi: er með dökkri innréttingu, upphengdu salerni, walk in sturtu og handklæða ofn. Aðstæða er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Bílskúr: er rúmgóður 38fm með milliloft.
Sameign: Hjóla-vagnageymsla
Sérgeymsla: 7,6 fm sem er staðsett í sameign.
Skipholt 11-13 var endurbyggt árið 2015, góð aðkoma að norðanverðu.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.