Viltu fasteignir kynna: Glæsilegt 180fm endaraðhús á einni hæð með bílskúr við Austurkór 49 Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, sjónvarpsrými og bílskúr. Skemmtilegt skipulag. Mikil lofthæð. Gólfhiti. Hellugagt bílaplan með hitalögn. Stór afgirt timburverönd með heitum og köldum pottum. Fallegt útsýni er frá húsinu, stutt í náttúruna. Eignin er skráð 180fm, þar af raðhús 153,5 m2 og bílskúr 26,5 m2.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Lýsing eiganda:
Forstofa með stórum fataskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í einu fallegu og björtu rými með gólfsíðum gluggum, með mikilli lofthæð og út gengi út á steypta skjólgóða verönd. Í eldhúsi er falleg innrétting með steinborðplötu, og góðum tækjaskáp, tveir bakaraofnar og þar af annar comby ofn .
Fallegt parket á gólfi í alrými og öllum svefnherbergjum, flísar á anddyri, þvottahúsi, eldhúsi og baðherbergjum.
Sjónvarpsherbergi er rúmgott opið inná svefnherbergisgang, hægt er að loka og gera að fjórða svefnherberginu, eða opna inn í stofuna.
Hjónasvíta með góðum fataskápum, og fallegu baðherbergi með walk in sturtu, upphengdu salerni. Fallegri innréttingu, flísar á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergi er bjart og rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi er bjart og rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi er með fallegri innréttingu, walk in sturtu, upphengd salerni, flísar á gólfi og hluta veggja.
Þvottahús er með góðri innréttingu, flísar á gólfi. Út gengt á stóra lokaða timburverönd með heitum og köldum pottum, og15 fm upp hitaðri lokaðri útigeymslu.
Bílskúr með flísum á gólfi og stórum fataskáp, einnig fylgir rafhleðslustöð.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.