Viltu kynnir bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á 3.hæð í fjölbýli á vinsælum stað í Grafarvoginum.
Eignin er þriggja herbergja á 3.hæð hússins, merkt 0303, birt stærð séreignar samkvæmt FMR er 85,3 fm en þar af er geymsla 3,1 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhúsi, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahúsi innan íbúðar ásamt geymslu í sameign. Íbúðinni fylgir einnig afnotaréttur að bílskúr sem allir íbúar hússins eiga í sameign. Þar er hægt að sinna viðgerðum eða þrifum.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
LÝSING:
Forstofa: er með tvöföldum fataskáp og parket er á gólfi
Þvottahús: er rúmgott með góðri vinnuaðstöðu og vaski. Dúkur er á gólfi.
Eldhús:er með vel með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og eldhúskrók. Flísar eru á gólfi.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf, þar er baðkar og snyrtileg innrétting.
Hjónaherbergi: er rúmgott með góðum fataskáp og parket er á gólfi.
Svefnherbergi: er með fataskáp og parket er á gólfi.
Stofan: er björt og útgengt er úr stofu út skjólgóðar svalir.
Búið er að útbúa lítið gluggalaust herbergi í íbúðinni, auðvelt er að taka það niður og stækka stofuna.
Sérgeymsla: er á jarðhæð fylgir íbúðinni
Sameign: er hjóla-vagna geymsla.
Íbúðinni fylgir einnig afnotaréttur að bílskúr sem allir íbúar hússins eiga í sameign. Þar er hægt að sinna viðgerðum eða þrifum.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.