Brekkubyggð 5
Eignin
- 111,6m² Flatarmál
- 4 Herbergi
- 3 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Sér inngangur
- Bílskúr
- Verönd
- Sér garður
- Útsýni
- Gæludýr leyfð
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2069455
- Merking
- 03-01-01
- Tegund
- Íbúð
- Byggingarár
- 1979
- Landeignarnúmer
- 118168
Lýsing á eign
VILTU fasteignasala kynnir Fallegt 111,6 fm einbýlishús með bílskúr á eftirsóttum stað við Brekkubyggð 5, 210 Garðabæ.
Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í 777-0191 eða [email protected]
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, bjarta og rúmgóða stofu og borðstofu, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi og baðherbergi. Inn af hjónaherbergi er fataskápur ásamt ókláruðu baðherbergi, sem býður upp á möguleika til frekari útfærslu. Fallegur og gróinn garður í góðu skjóli, með rúmgóðum sólpalli og áhaldageymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri er rúmgott með tvöföldum fataskáp og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og óklárað baðherbergi/fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi 1 minna herbergið er innangengt úr forstofu og er með flísum á gólfi.
Barnaherbergi 2 stærra herbergið er með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með baðkari, handklæðaofn og fallega viðarlitaða innréttingu ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa og eldhús mynda rúmgott alrými. Eldhús er með svartri innréttingu, innbyggðum ísskáp, frysti, uppþvottavél, ofni og spanhelluborði. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, með parketi og viðarklæddu lofti.
Bílskúr er með heitu og köldu vatni.
Garður er með timburverönd og skjólveggjum. Lóðin er með talsverðum trjágróðri og er fallega gróin. Geymsluskúr í garði fyrir garðhúsgögnin.
Upplýsingar frá eiganda:
-----------------------------------
1. íbúðin var endurskipulögð að miklu leyti ca 2019-20, áður en eigandi kaupir eign. Baðherbergið endurnýjað, eldhús og svefnherbergi færð til.
2. frárennslislagnir nærliggjandi íbúða (nr. 5, 7, 9, 11, 13 og 15) voru myndaðar 2024 - þá sat eigandi einn húsfélagsfund þó eigandi sé ekki meðlimur húsfélagsins, en var boðið vegna þess að Brekkubyggð 5 taldist með í þessum lagnamálum. Ekki var ákveðið eftir myndun að fara í fóðrun/endurnýjun á lögnum.
3. ekki er vifta í eldhúsi
------------------------------------
Húsið er byggt 1979 og hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina. Húsið er á 1 hæð staðsett í vinsælu hverfi í Garðabænum þaðan sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, verslanir og heilsugæslu.
Nánari upplýsingar í síma 7770191 eða [email protected]
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sér inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sér mæli
- Bílastæði
- 1 bílastæði
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Bílskúr
- Verönd
- Sér garður
- Útsýni
- Gæludýr leyfð
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Ekki vitað
- Vatnslögn
- ekki vitað, sjá "annað" hér að neðan
- Frárennslislögn
- Ekki vitað
- Raflögn
- nýtt að hluta vegna breytinga 2020
- Þak
- Ekki vitað
- Gluggar
- Ekki vitað
- Annað
- 1. íbúðin var endurskipulögð að miklu leyti ca 2019-20, áður en eigandi kaupir eign. Baðherbergið endurnýjað, eldhús og svefnherbergi færð til.
2. frárennslislagnir nærliggjandi íbúða (nr. 5, 7, 9, 11, 13 og 15) voru myndaðar 2024 - þá sat eigandi einn húsfélagsfund þó eigandi sé ekki meðlimir húsfélagsins, en var boðið vegna þess að Brekkubyggð 5 taldist með í þessum lagnamálum. Ekki var ákveðið eftir myndun að fara í fóðrun/endurnýjun á lögnum.
3. ekki er vifta í eldhúsi
4. Skv ástandsskoðun sem fór fram í tilboðsferli kom fram sprungu- og múrviðgerðir á ytra byrði og mögulegar rakaskemmdir í útveggjum þannig að við hvetjum seljendur til að skoða ástandið vel og fá til þess sérfræðinga á því sviði.
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
