Viltu kynnir 4ra herb bjart og steinsteypt raðhús á tveimur hæðum, með bílskúr, samtals 165,3 fm á eftirsóttum og fallegum stað í Suðurhlíðum í Kóp. Íbúðin er skráð 114,4 fm, geymsla 22,8 fm og bílskúr 28,1 fm.
Neðri hæð er á tveimur pöllum og skiptist í forstofu stofu og lítið baðherbergi. Borðstofa, eldhús ásamt þvottahúsi og útgengi á góða timbur verönd er á efri palli.
Efri hæð samanstendur af þremur svefnherbergjum,tveimur fataherbergjum og baðherbergi.
Framan við hús er garður til suðurs, en bakgarðurinn er lokaður og skjólgóður.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Nánari lýsing:
Anddyri:Er rúmgott með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi og suðurglugga með útsýni að Keili.
Borðstofa: Er uppá palli samtengd stofu með parketi á gólfi.
Eldhús: Er með eikar innréttingu, ofn í vinnuhæð og flísar eru á gólfi og á milli eftir og neðri skápa.
Þvottahús: Er innangengt frá eldhúsi með góðri hvítri innréttingu og útgengi út á sólpall í bakgarðinum.
Hjónaherbergi: Rúmgott með dúk á gólfi og fataherbergi.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö og með dúk á gólfi
Baðherbergi: Er með baðkari með sturtu og dúkur er á gólfi.
Gestasalerni niðri: Er með salerni, handlaug og litlum speglaskáp, flísar eru á gólfi
Bílskúr: Er rúmgóður með rafmagni og vatni.
Geymsla: Er mjög rúmgóð.
Rúmgóð sameignarrými raðhúsalengjunnar eru frest og innst í kjallar en þrjú minni geymslurými undir þremur tröppum eru sameign tveggja íbúð.
Eignin hentar vel fyrir gæludýraeigendur með sérinngangi og lokuðum garði bakatil.
rFyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.