Viltu kynnir fallegt endaraðhús á tveimur hæðum með bílskúr, samtals 168,6fm, íbúðin er skráð 119,6fm, geymsla 16,2fm og bílskúr 32,8fm við Álfhólsveg í Kópavogi
Neðri hæð skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, borðstu og sólskála
Efri hæð samanstendur af þremur björtum og rúmgóðum svefnherbergjum og baðherbergi.
Stór skjólgóður bakgarður.
Stutt er í alla þjónustu s.s. verslanir, skóla og leikskóla.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Nánari lýsing
Stofa björt og rúmgóð með hvíttuðu parketi á gólfi.
Sólstofa er með flísum á gólfi, sólstofan er ekki inni í skráðri fermetratölu en er um 11m 2.
Eldhús er með flísum á gólfi, falleg hvít eldhúsinnrétting.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Hol er með parketi á gólfi og er þaðan stigi uppá efri hæð.
Stigi á milli hæða er teppalagður.
Hol á efri hæð er parketlagt.
Hjónaherbergi er ágætlega rúmgott með góðum skápum, parket er á gólfi.
Herbergi á suðurhlið er góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Herbergi á norðurhlið er með parketi á gólfi og innfeldum skáp.
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi, baðkar og einnig sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél.
Bílskúr er rúmgóður, 32,8m 2 og er byggður 1982. Sjálfvirkur bílskúrshurðaropnari er í bílskúrnum og í honum eru vinnubekkir, heitt og kalt vatn. Gólf er steypt.
Geymsla er í sameign og er hún ágætlega stór með hillum.
Klæðning á húsinu virðist í ágætu standi.
Um er að ræða holsteinshús.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.