Viltu fasteignir kynna bjarta og fallega fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð með fallegu útsýni, auka herbergi og geymslu í kjallara og stæði í lokaðri bílageymslu. Eignin er skráð 148,6 fm að stærð, íbúð er skráð 101,2 fm, geymsla í kjallara 6,9 fm, herbergi 14,5 fm og stæði í bílskýli 26 fm. í fjölskylduvænu fjölbýli í Seljahverfi.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Nánari lýsing:
Anddyri: Með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús: Falleg hvít innrétting, borðkróki og útgengi á góðar svalir, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: parket á gólfi.
Svefnherbergi III: parket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt, með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, steyptur sturtuklefi, baðkar, og handklæðaofni. Á gólfi eru flísar.
þvottahús: Sér rými sem er skráð sem snyrting á teikningu.
Árið 2019 var farið í stórar framkvæmdir. Þak, mikið af gleri og einhverjir gluggar voru endurnýjuð.
Nýlega er búið að lakka gólf í kjallara og dyrasímakerfi var endurnýjað.
Í vor verða allir gluggar á báðum göfflum endurnýjaðir ásamt því að þak á anddyri verður endurnýjað. Seljandi greiðri fyrir framkvæmdir.
Í kjallara húseignarinnar er hjóla- og vagnageymsla sem og sameiginleg snyrtingi með sturtu, sérgeymsla íbúðar og auka herbergi/geymsla sem er mögulegt að leigja út. Þá fylgir einnig sérstæði í lokuðum bílakjalalra.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.