Viltu fasteignir kynna Fallegt og rúmgott 4 til 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr að Bröndukvísl 4, 110 Reykjavík. Eignin er í heild sinni 208,7fm, þar af 54,6fm bílskúr, húsið teiknað af Kjartani Sveinssyni. Lóðin er 756fm að stærð. Húsið skiptisti í tvær stofur, eldhús, þrjú til fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu og salerni inn af forstofu. Gegnheilt síldarbeins parket er á stofum og gangi hússins.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
LÝSING:
Forstofa er með flísum á gólfi, fataskápum og gestasalerni.
Eldhús falleg innrétting, mikið skápapláss og steinn á borðum, flísar á gólfi,
Svefnherbergi I er með parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi og fataherbergi innaf, einnig er útgengt úr því herbergi.
Baðherbergi er við enda gangs er mjög rúmgott, hvít falleg innrétting, flísalagt með sturtu og upphengdu salerni.
Þvottahús er með glugga og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa er með fallegu útsýni og stórum gluggum sem snúa til norðurs og með stafparket á gólfi og aðgengi út á verönd/garð. Arinn í stofu.
Bílskúr er mjög rúmgóður og telur 54,6fm með tveimur innkeyrsluhurðum.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.