Viltu fasteignir kynna fallega og talsvert endurnýjaða 4ra herbergja sérhæð ásamt bílskúr í fallegu 4ra íbúða fjölbýli við Drápuhlíð 7 í Reykjavík.
Eigendur skoða uppítöku á minni/ódýrari 3ja svefnherbergja eign í hverfinu.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum eignarinnar.
Eignin er skráð samtals 153,7 m² og skiptist í íbúð 109,9m², tvær geymslur í sameign samtals 9,4 m² og bílskúr 34,4 m².
Íbúðin samanstendur af þremur góðum svefnherbergjum, alrými (eldhús/stofa/borðstofa), holi og baðherbergi. Tvær geymslur og sameiginlegt þvottahús eru á jarðhæð. Bílskúrinn þarfnast talsverðra endurbóta en býður uppá allskonar skemmtilega möguleika. Íbúðinni fylgja 2-3 bílastæði.
Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð á síðustu árum.
2025:Nýtt plankaparket er á öllum rýmum nema baðherbergi og forstofu sem er með náttúruflísum.
2024: skipt um allar ofnalagnir (voru eirlagnir), gólfhiti settur í stofu, eldhús eitt svefnherbergi og hluta af holi..
2018: Drenað að skipt um skólplagnir.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Að utan er gengið um sérinngang í góða flísalagða forstofu. Þaðan er gengið beint áfram inn í íbúð, tilvinstiri í eitt af svefnherbergjunum eða til hægri um dyr niður í sameign.
Hol: Gengið inn í opið og rúmgott miðrými sem leiðir inn í aðrar vistarverur og alrými. Þar er góður, innbyggður skápur frá HTH
Eldhús: Stílhrein og vönduð innrétting frá HTH með endurnýjuðum heimilistækjum og steini á öllum borðum. Pláss fyrir amerískan ísskáp. Góður skagi sem hægt er að sitja við.
Stofa/borðstofa: Bjart og rúmgott rými með bogadregnum útskotsglugga til suðurs sem setur fallegan svip á rýmið.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með innbyggðum HTH fataskáp. Í dag notað sem rúmgott barnaherbergi. Þetta herbergi var upphaflega eldhús.
Svefnherbergi I: Bjart og gott herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með fallegum hornglugga. Gengið er í þetta herbergi frá forstofu.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Walk inn sturta og innbyggt upphengt salerni. Stór handklæðaofna og HTH vaskaskápur með steini á borði. Vönduð blöndunartæki í sturtu og við vask.
Þvottahús: Er sameiginlegt á jarðhæð. Hver með sínar vélar.
Geymsla: Tvær sér geymslur í sameign, önnur 4,4m² og hin 5,0m².
Bílskúr: Eigninni fylgir rúmgóður 34,4 m² bílskúr. Skráð sem tveir eignarhlutar en þessi íbúð hefur nýlega keypt eignarhlutann sem 2. hæð átti og á því allan bílskúrinn í dag. Skúrinn þarfnast verulegra endurbóta en býður uppá allskonar skemmtileg tækifæri.
Garður: Stór og fallega gróin sameiginlegur garður til suðurs og norðurs.
Íbúðin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi í miðsvæðis í borginni og í mjög þægilegu göngufæri við skóla, verslanir, þjónustu og útivistarsvæði á Klambratúni og við Öskjuhlíð. Mjög gott aðgengi út á helstu umferðaræðar og stutt í almenningssamgöngur með strætótengingar við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða [email protected]
Einnig er hægt að hafa beint samband við Viltu fasteignir í síma 583-5000 eða [email protected]
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr.
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.