Viltu kynnir bjarta, fallega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 116,5 fm. fjögurra svefnherbergja íbúð á 1. hæð við Framnesveg 63, 101 Reykjavík. Íbúðin er mjög vel skipulögð með suðvestur svölum. Sérmerkt bílastæði fyrir framan aðalinngang. Birt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 116,5m2. Íbúðin er 110m2 og geymsla er 6.5m2.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Falleg eign á 1.hæð í góðu, vel staðsettu, nýviðgerðu húsi í Vesturbænum.
Stutt í alla þjónustu ss. skóla, leikskóla, verslun og almenningssamgöngur.
Stutt í fallegar gönguleiðir með sjávarsíðunni.
Sameign mjög snyrtileg og er til fyrirmyndar. Vel rekið húsfélag.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Lýsing eignar.
Anddyri er með flísum á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi og fallegri innréttingu með miklu skápaplássi. Hiti er í gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt á skjólgóðar svalir til suðvesturs.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskápum, parketi á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi/vinnuaðstaða með flísum á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu. Upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu, gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús er inn af eldhúsi, rúmgott með góðu skápaplássi.
Sérgeymsla er innan sameignar.
Vagna/hjólageymsla er innan sameignar.
Sameignin er mjög snyrtileg og er til fyrirmyndar. Fyrir framan inngang íbúðar, innan sameignarinnar, er sér fata og skóskápur sem fylgir íbúðinni.
Framkvæmdir/viðhald á síðustu árum:
2024-25 Múrviðgerðir á ytra byrði hússins
2022 Gluggaskipti þar sem talið var nauðsynlegt af fagmanni
2020 Eldhús endurnýjað
2020 Gólfefni (flísar) endurnýjað
2017 Baðherbergi endurnýjað
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.