Viltu fasteignir kynna 96,7 fm þriggja herbergja íbúð á 4. hæð á mjög eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík - Mikið og gott útsýni - Stórar sameiginlegar þaksvalir.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.
Íbúðin er björt og vel skipulög. Í dag er 1 svefnherbergi en auðvelt væri að nýta aðra stofuna sem stórt svefnherbergi líka.
Eignin skiptist í forstofu/hol, tvær rúmgóðar samliggjandi stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla sem fylgir íbúð. Á efstu hæð eru stórar sameiginlegar þaksvalir fyrir íbúa hússins.
Eignin er skráð 96,7 og skiptist í 88,6m2 íbúð á hæð og 8,1m2 geymslu í kjallara.
- Frábært útsýni yfir Esjuna og sjóinn.
- Stofur og herbergi mjög rúmgóð og björt.
- Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2026.
- Inngangur í húsið bæði að framan frá Hverfisgötu og að aftan frá Veghúsastíg.
- Falleg steinklæðning með hrafntinnu.
- Engar íbúðir í húsinu eru notaðar í skammtímaleigu.
Nánari lýsing:
Stigagangur er snyrtilegur, teppalagður með svalir á hverri hæð.
Forstofa/hol. Frá stigapalli er gengið í gott hol með parket á gólfi. Þaðan er gengið í aðrar vistarverur íbúðar.
Eldhús er rúmgott og bjart. Gott útsýni til sjávar og fjalla. L-laga hvít eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, flísalagt er þar á milli. Gert ráð fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskápum og fallegt og gott útsýni til sjávar og fjalla. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og baðvaski. Nýlega endurnýjaður vaskaskápur og speglaskápur yfir honum.
Stofan er tvöföld með rennihurðum (auðvelt er að nýta annað þeirra sem svefnherbergi) Hvorutveggja eru mjög rúmgóð og björt rými, parket á gólfum.
Þvottahús: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús fyrir íbúa. Hver með sína vél.
Geymsla: Í kjallara er sér 8,1m2 geymsla fyrir íbúðina.
Í kjallara á sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt snyrtingu.
Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / [email protected] eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / [email protected]
Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða [email protected]
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.