Viltu fasteignir kynna bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð ásamt bílastæði á vinsælum stað við Framnesveg 6, í 101 Reykjavík. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt stærð eignar 85,4fm, sem skiptist íbúð 78,4fm og geymsla 7fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu.
Framnesvegur er falleg og gróin gata nálægt sjávarsíðunni. Stutt er í miðbæinn höfnina og Granda sem býður upp á margvíslega þjónustu og veitingastaði.
Grunn- og leikskóli í göngufæri, frábær staðsetning.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
LÝSING:
Anddyri með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri fallegri innréttingu og góðu skápaplássi, borðkrókur.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og björt, stórir gluggar á tvo vegu, útgengi út á rúmgóðar svali í suður, parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott og bjart með fataskáp og parketi á gólfi.
Herbergi með góðum glugga, fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með glugga, flísar á gólfi og veggjum, innrétting með vaski í borði, baðkar og sturtutæki.
Stórar og snyrtilegar svalir í suður með fallegu útsýni.
Sameign er mjög rúmgóð og snyrtileg
Þvottahús er sameignilegt á 1.hæð þar sem hver íbúð er með eigin þvottavél og þurrkara.
Geymsla er rúmgóð 6,9 fm með hillum.
Hjóla og vagnageymsla.
Bílastæði er með íbúðinni, rafmagnshleðsla er í stæði.
Sameiginlegur gróinn stór garður.
Framnesvegur er falleg og gróin gata nálægt sjávarsíðunni. Stutt er í miðbæinn höfnina og Granda sem býður upp á margvíslega þjónustu og veitingastaði.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.