Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Sandur 4

641 Þingeyjarsveit Fastanr. 2511230 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 12
Ásett verð 95.000.000 kr. 186 kr./m²

Eignin

  • 511000,0m² Flatarmál

Skráning

Fasteignanúmer
2511230
Merking
00
Tegund
Jörð
Landeignarnúmer
230505
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna lögbýlið Sand 4 í Þingeyjarsveit, um 15 mínútna akstur frá Húsavik.
Frábært tækifæri til að eignast land með mikla möguleika til uppbyggingar á ferðaþjónstu, frístundabyggð eða öðru sem hugurinn girnist.

Eigendur skoða að taka fasteign uppí hluta kaupverðs eða jafnvel, ef kaupandi hyggur á mikla uppbygginu á svæðinu, að eignast hluta í þeirri uppbyggingu sem endurgjald fyrir landið.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast þinglýst skjöl og sölugögn eignarinnar.

Sandur 4 samanstendur af 51,2 hektara séreign ásamt 20% hlutur í tæplega 900 hektara sameign að Skjálfandafljóti og strönd Skjálfandaflóa.
Sjá skráningu í landeignaskrá HMS. Landamerki nýlega yfirfarin, hnitsett og þinglýst. Enginn ágreininur er um landamerki sameignar og séreignar.

Sandur 4 er skráð lögbýli með öllum þeim byggingarétti sem fylgir því (3 íbúðarhús og 3 frístundahús auk bygginga sem tilheyra rekstri lögbýlis).
Í nýju aðalskipulagi Þingeyjarsveitar (sem bíður lokastaðfestingar) er gert ráð fyrir 13 hektara frístundasvæði þar sem byggja mætti 5 frístundahús til viðbótar. Einnig er þar heimiluð uppbygging allt að 1.500m2 af atvinnu/þjónustuhúsnæði, í samræmi við stefnu sveitarfélagsins um að ferðaþjónusta og landbúnaður í fjölbreyttri mynd verði áfram meginatvinnuvegur í sveitarfélaginu.
Stöðu nýja aðalskipulagsins má sjá í Skipulagsgátt.

Hér er hlekkur á landið á Google maps

Nánar er hægt að skoða landið á: https://www.ruraliceland.com/

Rafmagn og ljósleiðari er í vegkanti sem liggur í gegnum suðaustur horn séreignarinnar.
Gamall vegaslóði liggur frá vegkanti og inn á 5 hektara tún sem auðveldar umgengni/uppbygginu á svæðinu.
Nægt kalt vatn er talið vera á svæðinu miðað við reynslu af borholum á nærliggjandi bæjum.
Skógræktin er búin að taka út séreignarlandið og veita jákvæða umsögn vegna skógræktar.

Landið er vel staðsett í hinum nýja Demantshring (Diamond circle) sem verið er að hvetja ferðamenn til að heimsækja https://www.northiceland.is/diamondcircle
Í þægilegri akstursfjarlægð eru t.d. Goðafoss, Mývatn, Húsavík, Dimmuborgir, Dettifoss, Hljóðaklettar, Ásbyrgi og margt fleira.

Gildandi skipulagið er hér: sjá bls. 65 (67 í skjalinu).
Samþykktur var viðauki sem heimilar íbúðarhús og frístundahús á nýjum lögbýlum, sem á þá við um Sand 4: Hægt er að skoða það hér.

Við mótun stefnu og markmiða styðst sveitarstjórn Þingeyjarsveitar við eftirfarandi:
Þingeyjarsveit verði eftirsótt til búsetu og vettvangur fjölbreyttrar atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið, jafnt í dreifbýli sem þéttbýli.
Ferðaþjónusta og landbúnaður í fjölbreyttri mynd verði áfram meginatvinnuvegur í sveitarfélaginu en íbúar hafi jafnframt tækifæri til að nýta aðrar auðlindir og gæði á sjálfbæran hátt.

Aðalskipulagið sem var til kynningar er hér: Aðalskipulag Þingeyjarsveitar | Þingeyjarsveit
Uppdráttur A sýnir m.a. Sand: a1517-013-d04-skipulagsuppdrattur-a.jpg (9933×14043)
Greinargerðin sem tiltekur frístundasvæðið er hér: A1517-004 Aðalskipulag greinargerð - Sandur er svæði F-323 á blaðsíðu 60.
Um annað landbúnaðarland er fjallað á blaðsíðu 73 í greinargerðinni.

Sandur 4 gæti því hentað í margvíslega uppbyggingu að fengnu samþykki sveitarfélagsins, s.s. hótel, gistiheimili, frístundabyggð, ferðaþjónustu, íbúðarhúsnæði og margt fleira.

Á sameignarlandinu er aðgengi að fallegri svartri sandströnd og mikið fuglalíf.

Nánari upplýsingar veita Viltu fasteignir í 583-5000 eða [email protected], einni veita eigendur nánari upplýsingar í gegnum vefsíðuna https://www.ruraliceland.com/

Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða [email protected]

Almennar upplýsingar

Upphitun
Rafmagns upphitun
Eignarhlutur til sölu
100%

Staðsetning

Sandur 4, 641 Þingeyjarsveit

Ástand og gallar

Seljandi hefur ekki skráð yfirlýsingu um ástand eignarinnar.

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Jörð 2388239 Aðaleining Jörð
Byggt ÓskráðStærð 51,1 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni ÓskráðByggingarstig Óskráð
HúsmatÓskráð
BrunabótamatÓskráð
Fasteignamat717.000 kr.
Æðarvarp 2388246 Fylgieining
Byggt ÓskráðStærð ÓskráðHerbergi ÓskráðByggingarefni ÓskráðByggingarstig Óskráð
Húsmat1.000 kr.
BrunabótamatÓskráð
Fasteignamat1.000 kr.
Ræktun 2388241 Fylgieining
Byggt ÓskráðStærð 4,8 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni ÓskráðByggingarstig Óskráð
Húsmat615.000 kr.
BrunabótamatÓskráð
Fasteignamat615.000 kr.
Lax- / silungsveiði 2388245 Fylgieining
Byggt ÓskráðStærð ÓskráðHerbergi ÓskráðByggingarefni ÓskráðByggingarstig Óskráð
Húsmat6.000 kr.
BrunabótamatÓskráð
Fasteignamat6.000 kr.
Reki 2388247 Fylgieining
Byggt ÓskráðStærð ÓskráðHerbergi ÓskráðByggingarefni ÓskráðByggingarstig Óskráð
Húsmat54.000 kr.
BrunabótamatÓskráð
Fasteignamat54.000 kr.

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Kristján Borgar Samúelsson Löggiltur fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
95.000.000 kr.Sandur 4
Hafa samband Gera tilboð