Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Bjartahlíð 21

270 Mosfellsbær Fastanr. 2219404 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 38
Ásett verð Tilboð óskast

Eignin

  • 205,0m² Flatarmál
  • 5 Herbergi
  • 4 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Bílskúr
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2219404
Merking
01-01-01
Tegund
Raðhús
Byggingarár
1995
Landeignarnúmer
124186
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna vel skipulagt 205m2 raðhús á tveimur hæðum við Björtuhlíð 21, 270 Mosfellsbæ.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar

Seljendur skoða að taka eign upp að 100 milljónum uppí. Hafið samband til að bóka skoðun.

Eignin getur verið laus við kaupsamning

Bjartahlíð 21 er fallegt 205m2 raðhús á frábærum stað í Hlíðunum í Mosfellsbæ. 4 svefnherbergi, bílskúr og garður bæði í suður og norður. Hluti efri hæðar er undir súð og því eru nýtanlegir fermetrar fleiri en uppgefnir.

Nánari lýsing:

1.hæð

Forstofa: Flísalögð með góðum skáp.
Borðstofa/stofa: Bjart og rúmgott rými með gluggum til suðurs og útgengi á sólpall til suðurs. Mjög mikil lofthæð í hluta rýmisins. Parket á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og bjart með góðri sprautulakkaðri u-laga innréttingu. Borðkrókur við glugga. Vínilflísar á gólfi.
Baðherbergi: Mjög rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturtuhorn. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með gluggum til norðurs. Parket á gólfi. Úr herberginu er hægt að ganga út í norður garðinn. Þar er fullkomið til að koma fyrir potti og gufu!
Herbergi: Nett herbergi sem hentar fullkomlega fyrir barn eða sem heimaskrifstofa. Parket á gólfi.
Þvottahús: Gott þvottahús með innréttingu. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara hlið við hlið í hæð í innréttingunni. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Í dag nýttur að hluta sem herbergi en lítið mál að breyta til baka. Gott milliloft. Bílskúrinn er 25m2

2.hæð.

Gengið er til 2. hæðar um stiga frá stofu.
Alrými: Frá stiga er komið í alrými sem er að hluta opið niður í stofu neðri hæðar. Mjög rúmgott og nýtist vel bæði fyrir sjónvarpsherbergi og fyrir heimaskrifstofu. Möguleiki er að breyta skipulagi og búa til 5. svefnherbergið þarna. Plastparket á gólfi
Svefnherbergi I: Stórt og gott herbergi með pláss fyrir bæði svefnhluta og litla setustofu. Þakgluggi. Plastparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Einnig rúmgott með nægu plássi og þakglugga. Plastparket á gólfi.

Lóð/garður: Til suðurs er sólpallur og steypt bílaplan með snjóbræðslu. Norðan við hús er grasflöt.

Frábært tækifæri til að eignast sérbýli með 4-5 svefnherbergi og suðurgarði í grónu og vinsælu hverfi í Mosfellsbæ. Örstutt í skóla, sundlaug, World Class, verslanir og þjónustu. Falleg eign í botnalanga í friðsælli götu.

Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða [email protected] / Viltu fasteignir í 5835000 eða [email protected]

Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sér inngangur
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
3 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskúr
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Staðsetning

Bjartahlíð 21, 270 Mosfellsbær

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Þarf að yfirfara
Frárennslislögn
Upprunalegt
Raflögn
Upprunalegt
Þak
Yfirfarið og málað 2020
Gluggar
Upprunalegt
Annað
Það þarf að fóðra eða endurnýja neysluvatnslagir. Ef vatnið er ekki notað í einhvern tíma kemur það brúnleitt til að byrja með.
Gólfefni í eldhúsi er til bráðabirgða og ekki fullklárað. Það liggur ofan á eldri flísum.

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Raðhús 2219404 Aðaleining Raðhús
Byggt 1995Stærð 205,0 m²Herbergi 7Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat116.750.000 kr.
Brunabótamat107.600.000 kr.
Fasteignamat136.450.000 kr.

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Heiðrekur Þór Guðmundsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
Tilboð óskastBjartahlíð 21
Hafa samband Gera tilboð