Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Brimdalur 14

260 Reykjanesbær Fastanr. 2501641 Eignarhlutur til sölu: 0%
Vakta eign
1 / 46
Ásett verð 124.900.000 kr. 675.135 kr./m²

Eignin

  • 185,0m² Flatarmál
  • 6 Herbergi
  • 4 Svefnherbergi
  • 2 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Bílskúr
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2501641
Merking
01-01-01
Tegund
Parhús
Byggingarár
2020
Landeignarnúmer
227304
Viltu

Lýsing á eign

Viltu kynnir Fallegt fimm herbergja parhús á einni hæð að Brimdölum 14 í Innri-Njarðvík. Innangengt er inn í bílskúr og hægt er að ganga út á stóra viðarverönd bæði frá stofu og bílskúr. Einstaklega glæsileg eign byggð 2020. Innan við 5 mín gangur er í leikskóla og grunnskóla. Handan götunnar í hina áttina eru göngustígar við sjávarsíðuna og yndislegt umhverfi. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands alls 185 m2. Íbúð er skráð 143,5 m2 og bílskúr 41,5 m2.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús og búr innaf eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, geymslu og bílskúr. Búið er að setja þvotta aðstöðu með fallegri dökkri innréttingu innst í bílskúrnum.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]


Nánari lýsing
Forstofa er með ljósum gólfflísum og dökkum viðarfataskáp sem nær upp í loft. Inn af forstofu er gengið inn í bílskúr, gestasalerni og inn í alrými íbúðar.
Gestasalerni er með eins gólfflísum og forstofa og ná flísar upp á salerniskassa. Upphengt salerni og skápur undir handlaug.
Stofa og borðstofa ásamt sjónvarpsrými er í skemmtilega opnu rými með eldhúsi. Útgengi er út á viðarverönd frá stofu.
Eldhús er opið inn í stofu og skilur eyja á milli. Við eyju er hægt að koma fyrir fjórum háum stólum. Whirlpool spanhelluborð á eyju. í innréttingu er innfelld Whirlpool uppþvottavél, sjálfhreinsandi bakaraofn og vínrekki ofan við ísskáp. Útdraganlegar skúffur og gott aðgengi. Steingráar borðplötur.
Búr er inn af eldhúsi. Fallegar hillur, góð vinnuaðstaða og vaskur.
Herbergi I er rúmgott hjónaherbergi, 12,8 m2 (stærsta herbergið). Fataskápar úr því herbergi voru fluttir yfir í næsta herbergi.
Herbergi II var útbúið sem fataherbergi. Stórir viðarskápar upp í loft. Stærð 9,5 m2.
Herbergi III er með þreföldum fataskáp. Stærð herbergis 10,1 m2.
Herbergi IV er með þreföldum fataskáp. Stærð herbergis 8,9 m2.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Sturta með gleri, baðkar, upphengt salerni, svartur handklæðaofn og innrétting við handlaug.
Bílskúr er með epoxy á gólfi. Niðurfall fyrir miðju gólfi. Vaskur. Lagnagrind, rafmagnstafla og ljósleiðari í bílskúr. Varmaskiptir á vatninu. Rafmagn er 3-fasa. Sjálfvirkur hurðaopnari.
Geymsla er opin og er í hluta af bílskúr. Búið er að setja þvotta aðstöðu með fallegri innréttingu í enda bílskúrsins. Útgengi er út á viðar verönd.

Garður/lóð framan við hús er hellulagt upphitað bílaplan sem uppfyllir skilyrði fatlaðra. Á norðaustur hluta lóðar er grasflötur og aftan við hús til suðvesturs er stór viðar verönd með skjólgirðingu. Búið að að byggja upphitaðann geymsluskúr með svarti klæðningu og tvöfaldri útihurð.
Viðar verönd er með heitum potti. Hitastýring er í bílskúr með rafmagns kúluloka. Í hluta af timburvirki við pottinn eru geymslurými.

* Innréttingar, gólfefni o.fl.: Innfelld lýsing er í öllum rýmum íbúðarhúsnæðis.
* Gólfefni eru flísar og parket og flæðir parket á milli rýma án þröskulda.
* Parket er nýtt frá 2021.
* Gólfhitastýring í öllum rýmum.
* Í bílskúr er epoxy á gólfi.
* Allar innréttingar eru sérsmíðaðar, svarbrúnar og ná upp í loft. Engar höldur á skápum og lokast skúffur og skápar með ljúflokun. Útiljós eru með birtunema.

Byggingarlýsing: Einlyft parhús, byggt úr timbri og klætt flísum að utanverðu. Á lóð eru tvö bílastæði og sorpskýli. Hvor húseining er sér brunahólf, þ.e. sér brunahólf er milli húseininganna tveggja (samliggjandi bílskúrar) og sér brunahólf milli íbúðar og bílskúrs. Sökklar og botnplata eru staðsteypt með járnbentri steinsteypu. Gluggar eru timbur-ál og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Þakvirki er varið með þakpappa og báraðri málmklæðningu. Varmaskipti fara fram við inntök hússins. Húsið er hitað upp með gólfhitalögn. Nánari útlistun er að finna í byggingarlýsingu á samþykktri teikningu.

    Almennar upplýsingar

    Inngangur
    Sér inngangur
    Upphitun
    Hitaveita með sér mæli
    Bílastæði
    2 bílastæði
    Geymslur
    1 geymsla
    Eignarhlutur til sölu
    0%

    Fylgir eigninni

    • Bílskúr
    • Verönd
    • Sér garður
    • Gæludýr leyfð

    Staðsetning

    Brimdalur 14, 260 Reykjanesbær

    Ástand og gallar

    Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
    Burðarvirki
    Upprunalegt
    Vatnslögn
    Upprunalegt
    Frárennslislögn
    Upprunalegt
    Raflögn
    Upprunalegt
    Þak
    Upprunalegt
    Gluggar
    Upprunalegt
    Annað
    Ekkert skráð

    Matseiningar

    Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
    Parhús 2373202 Aðaleining Parhús
    Byggt 2020Stærð 143,5 m²Herbergi 5Byggingarefni TimburByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
    Húsmat92.500.000 kr.
    Brunabótamat77.800.000 kr.
    Fasteignamat105.750.000 kr.
    Bílskúr 2384558 Fylgieining
    Byggt 2020Stærð 41,5 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni TimburByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
    HúsmatÓskráð
    Brunabótamat13.900.000 kr.
    FasteignamatÓskráð

    Skjöl

    Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

    Föst gjöld

    Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

    Eigendur eignar

    Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
    Hafa samband
    Karólína Íris Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
    ViltuKópavogur, 200
    124.900.000 kr.Brimdalur 14
    Hafa samband Gera tilboð