Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Lágaleiti 11 - íbúð 301

103 Reykjavíkurborg Fastanr. 2368905 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 36
Ásett verð 139.900.000 kr. 916.176 kr./m²

Eignin

  • 152,7m² Flatarmál
  • 4 Herbergi
  • 3 Svefnherbergi
  • 2 Baðherbergi
  • Sameiginlegur inngangur
  • Bílskýli
  • Svalir
  • Útsýni
  • Bílahleðsla
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2368905
Merking
03-03-01
Tegund
Íbúð
Byggingarár
2020
Landeignarnúmer
224637
okt31
Opið hús Laugardaginn 31. október kl. 14:00 - 14:30
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna Lágaleiti 11 sem er vönduð 4ra herbergja íbúð með fallegu útsýni, tveimur baðherbergjum, tvennum svölum, tveimur stæðum í bílageymslu og tveimur geymslum.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Um er að ræða fallega og bjarta 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu nýlegu lyftuhúsi á RÚV reitnum við Lágaleiti.

Eignin skiptist í forstofu/hol, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og svalir bæði til suðurs og norðurs.
Tvö stæði í bílageymslu fylgja íbúðinni og einnig tvær mjög góðar geymslur í kjallara. Önnur þeirra beint fyrir innan annað bílastæðanna.

Eignin er skráð 152,7m2 og skiptist í 124,1m2 íbúð og ásamt geymslum sem eru 11,1m2 og 17,5m2.

  • Innréttingar eru hannaðar af GKS og smíðaðar af Nobilia í Þýskalandi.
  • Hús klætt að utan með vandaðri viðhaldslausri veðurkápu.
  • Fallegt planka Pergo harðparket, sem er vatns og höggþolið, á öllu nema baðherbergjum, forstofu og við svalaútgang.


Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu/gang og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Góður innbyggður fataskápur er á ganginum.
Baðherbergi 1: Gengið í frá forstofu. Gólf og votrými flísalögð með fallegum flísum. "Labb-inn" sturta, nett innrétting með speglaskáp, upphengt salerni og handklæðaofn.
Stofa/borðstofa: Samliggjandi í rúmgóðu opnu og björtu rými. Gólfsíðir gluggar í hluta rýmisins. Frá stofu er gengið út á suðursvalir.
Svalir 1: Út frá stofu eru um 6m2 svalir til suðurs.
Eldhús: Vönduð innrétting hönnuð af GKS. Mikið skápapláss og góð eyja með spanhelluborði. Borðplötur úr plastlögðum viði. Ofn í vinnuhæð og nýleg uppþvottavél.
Baðherbergi 2: Rúmgott baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gólf og votrými flísalögð með fallegum flísum. "Labb-inn" sturta, góð innrétting með speglaskáp, upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með stórum innbyggðum fataskáp og fallegum hornglugga.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart herbergi með innbyggðum fataskáp.
Herbergi 3: Gott og bjart herbergi.
Svalir 2: Út frá herbergjagangi eru um 6m2 svalir til norðurs. Þær snúa út í sameiginlegan inngarð með leiksvæði.

Tvö bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgja. Við annað stæðið er hleðslustöð fyrir rafbíl en við hitt stæðið er búið að leggja rafmagn og auðvelt að setja upp stöð. Annað stæðið nýtist til að geyma bæði kerru og bíl.
Tvær góðar geymslur fylgja íbúðinni. Stærri geymslan er 17,5m2 og er beint fyrir aftan annað stæðið. Hún er í dag notuð sem hálfgert hobbí-og smíðaherbergi. Hin geymslan er 11,1m2 og er á geymslugangi.

Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.

Eignin er á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þaðan sem stutt er í þjónustu, skóla/leikskóla og útvist!

Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / [email protected] eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sameiginlegur inngangur
Upphitun
Hitaveita með sameiginlegum mæli
Bílastæði
2 bílastæði
Geymslur
2 geymslur
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskýli
  • Svalir
  • Útsýni
  • Bílahleðsla
  • Gæludýr leyfð

Staðsetning

Lágaleiti 11 - íbúð 301, 103 Reykjavíkurborg

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Upprunalegt
Frárennslislögn
Upprunalegt
Raflögn
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Gluggar
Upprunalegt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2368905 Aðaleining Íbúðareign
Byggt 2020Stærð 152,7 m²Herbergi 4Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat110.600.000 kr.
Brunabótamat98.050.000 kr.
Fasteignamat124.200.000 kr.
Stæði í bílageymslu 2368927 Fylgieining
Byggt 2020Stærð ÓskráðHerbergi ÓskráðByggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat8.950.000 kr.
FasteignamatÓskráð
Stæði í bílageymslu 2368946 Fylgieining
Byggt 2020Stærð ÓskráðHerbergi ÓskráðByggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat8.950.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Heiðrekur Þór Guðmundsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
139.900.000 kr.Lágaleiti 11 - íbúð 301
Hafa samband Gera tilboð