Vallakór 6A - íbúð 301
Eignin
- 126,4m² Flatarmál
- 4 Herbergi
- 3 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Sér inngangur
- Bílskúr
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2354682
- Merking
- 01-03-01
- Tegund
- Íbúð
- Byggingarár
- 2018
- Landeignarnúmer
- 209898
Lýsing á eign
VILTU fasteignasala kynnir Vallakór 6A í Kópavogi.
Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 3. hæð með stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er 126,4 m² að stærð, þar af er geymsla 5,6 m². Rúmgóðar svalir og glæsilegt útsýni setja sterkan svip á eignina.
Hún er skráð sem íbúð 0301 og henni fylgir geymsla ásamt sérmerktu stæði í bílageymslu, B32. Íbúðin skiptist í anddyri, hjónaherbergi og 2 barnaherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús í rúmgóðu alrými. Útgengi er úr stofu á stórar svalir með svalalokun og er mikið útsýni bæði af svölunum og úr stofunni.
Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í 777-0191 eða [email protected]
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari lýsing:
Anddyri er rúmgott með fataskáp og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum opnum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi 1 er með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi 2 er með góðum fataskáp og parketi á gólfi.Baðherbergi er flísalagt með sturtu, rúmgóða hvíta innréttingu og vegghengdu salerni, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Stofa og eldhús mynda bjart og rúmgott alrými. Eldhúsið er hvítt og L-laga, með góðu skápaplássi og vandaðri borðplötu úr quartz steini. Frá stofu er útgengi á stórar svalir með gott rými fyrir grill og garðhúsgögn. Parket er á gólfi í eldhúsinu og stofunni. Það er búið að setja quarts stein á alla sólbekki í íbúðinni.
Svalir eru rúmgóðar og bjóða upp á glæsilegt útsýni.
Húsið:
Húsið skiptist í tvær byggingar, Vallakór 6a og 6b, með tveimur lyftuhúsum. Tvær lyftur eru í öðru húsinu en ein í hinu. Stigar eru í báðum lyftuhúsum og er aðgengi því gott.
Bílageymsla er lokuð og fylgir öllum íbúðum sérmerkt bílastæði.íbúðir á jarðhæð eru með sérafnotarétt á lóð.
Þjónusta:Eignin er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu. Í næsta nágrenni má meðal annars finna leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, Kórinn íþróttamiðstöð, Salalaug, hesthúsahverfi, líkamsrækt og golfvöll GKG. Þá eru Heiðmörk og útivistarsvæðin í kringum Elliðavatn og Vífilsstaðavatn í góðu nágrenni.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sér inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Bílastæði
- 1 bílastæði
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Bílskúr
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Upprunalegt
- Vatnslögn
- Upprunalegt
- Frárennslislögn
- Upprunalegt
- Raflögn
- Upprunalegt
- Þak
- Upprunalegt
- Gluggar
- Upprunalegt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skýrslur um ástand húss
Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
