Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Sandakur 12

210 Garðabær Fastanr. 2299455 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 38
Ásett verð 184.500.000 kr. 760.511 kr./m²

Eignin

  • 242,6m² Flatarmál
  • 6 Herbergi
  • 4 Svefnherbergi
  • 3 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Bílskúr
  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Bílahleðsla
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2299455
Merking
01-01-01
Tegund
Raðhús
Byggingarár
2007
Landeignarnúmer
202981
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna Sandakur 12, 210 Garðabæ. Glæsilegt 5 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.

Eigendur skoða uppítöku á eign á höfuðborgarsvæðinu upp að 100 milljónum og með a.m.k. 3 svefnherbergi.

Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, heidrekur@viltu.is eða í síma 8459000

Á sölusíðu eignarinnar getur þú nálgast sölyfirlit og önnur gögn um eignina.
Einnig er hægt að gera tilboð í eignina á sölusíðunni.

Sandakur 12 er vel staðsett 242,6m2 raðhús á rólegum og fjölskylduvænum stað miðsvæðis í Akrahverfinu. Um er að ræða 242,6 fermetra eign sem skiptist í 213,7 fermetra íbúð og 28,9 fermetra bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, eldhús, stóra stofu/borðstofu, baðherbergi, geymslu og bílskúr á neðri hæð. Á efri hæð eru þvottahús, baðherbergi, tvö stór svefnherbergi og hjónasvíta með sér bað- og fataherbergi. Auðvelt er að bæta við fjórða svefnherberginu á hæðinni. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og klætt viðhaldslítilli álklæðningu og timburklæðningu.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 242,6 fm, þar af er bílskúr 28,9 fm
Fasteignamat 2027 er 184.550.000,-.


Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi og inngangi í bílskúr og geymslu. Flísar á gólfi.
Hol / gangur: Frá forstofu er komið inn í stórt hol í miðrými hússins þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Parket á gólfum.
Eldhús: Opið inn í miðrými hússins, spónlögð eikarinnrétting og hvít granít borðplata. Gott skápapláss. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum. Útgengt á sólpall til norðurs. Parket á gólfi.
Pallur: Frá stofu er gengið á góðan pall. Undir pallinum eru lagnir fyrir heitan pott.

Efri hæð: Úr miðrými húss er gengið um vandaðan stiga upp á efri hæð.
Stofa/fjölskyldurými: Frá stiga er komið inn í miðrými hæðar þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Góð sjónvarpsstofa/fjölskyldurými. Þessu rými er auðvelt að breyta í fjórða svefnherbergið. Parket á gólfum.
Herbergi 1: Stórt og rúmgott með parketi á gólfi.
Herbergi 2: Stórt og rúmgott með parketi á gólfi.
Hjónasvíta: Stór og rúmgóð, sér baðherbergi með baðkari og rúmgott fataherbergi. Parket á gólfi. Frá hjónasvítu er úttgengt á góðar suðvestur svalir
Baðherbergi: Með upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtu. Flísar í hólf og gólf.
Þvottahús: Rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Mjög gott skápapláss og vinnuvaskur. Flísar á gólfi.

Geymsla: Góð geymsla er inn af forstofu á jarðhæð.
Bílskúr: Innangengt frá forstofu.
Bílaplan: Hellulagt bílaplan með hita. Tvær hleðslustöðvar fyrir rafbíla uppsettar.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð.

Frábært tækifæri til að eignast góða eign í fallegu umhverfi á fjölskylduvænum stað í Garðabæ.
Á sölusíðu eignarinnar getur þú nálgast sölyfirlit og önnur gögn um eignina.
Einnig er hægt að gera tilboð í eignina á sölusíðunni.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í heidrekur@viltu.is eða í síma 8459000.

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sér inngangur
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
2 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskúr
  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Bílahleðsla
  • Gæludýr leyfð

Staðsetning

Sandakur 12, 210 Garðabær

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Upprunalegt
Frárennslislögn
Upprunalegt
Raflögn
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Gluggar
Upprunalegt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Raðhús 2299455 Aðaleining Raðhús
Byggt 2007Stærð 213,7 m²Herbergi 5Byggingarefni ForsteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat151.250.000 kr.
Brunabótamat128.100.000 kr.
Fasteignamat178.650.000 kr.
Bílskúr 2299456 Fylgieining
Byggt 2007Stærð 28,9 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni ForsteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat12.050.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Heiðrekur Þór Guðmundsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
184.500.000 kr.Sandakur 12
Hafa samband Gera tilboð