Ásland 12
Eignin
- 203,7m² Flatarmál
- 8 Herbergi
- 6 Svefnherbergi
- 2 Baðherbergi
- Margir inngangar
- Bílskúr
- Verönd
- Sér garður
- Bílahleðsla
- Gæludýr leyfð
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2082804
- Merking
- 01-01-01
- Tegund
- Einbýli
- Byggingarár
- 1984
- Landeignarnúmer
- 123984
Lýsing á eign
Viltu fasteignir kynna 203,7 m2 einbýlishús á einni hæð með bílskúr og góðri aukaíbúð. Húsið stendur á 1.067m2 hornlóð(eignarlóð) á fallegum stað.
Fasteignamat 2027 skv. HMS er 142.750.000 kr.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.
Ásland 12 er fallegt og vel skipulagt 203,7 m2 einbýlishús á einni hæð sem skiptist í 5-6 svefnherbergi, aukaíbúð, bílskúr og stóran skjólgóðan garð með sólpöllum, garðhýsi, heitum potti og útieldhúsi. Húsið stendur á stórri og fallegri hornlóð með mikla möguleika.
Húsið er vel um gengið og hefur verið í eigu sama aðila síðstu 30 árin. Ytra byrði hússins sem er timburhús hefur fengið reglulegt viðhald:
2022 var skipt um þakjárn og pappa og allir gluggar voru málaðir að innan og utan 2026.
Frábært tækifæri til að eignast gott einbýlishús með mikla möguleika á að aðlaga notkun og skipulag eftir eigin höfði.
Nánari lýsing:
Aðalhús:
Forstofa: Að utan er gengið í rúmgóða forstofu með innbyggðum fataskáp. Flísar á gólfi. Frá forstofu er gengið í eitt svefnherbergi.
Herbergi 1: Út frá forstofu er rúmgott herbergi sem áður var með netta gestasnyrtingu. Snyrtingin hefur verið fjarlægð en allar lagnir eru enn til staðar og því auðvelt að breyta til baka.
Hol: Úr forstofu er gengið í stórt hol þaðan sem gengið er í önnur rými hússins.
Stofa/Borðstofa/Setustofa: Samliggjandi eldhúsi er mjög rúmgott, bjart og opið rými með borstofu, setustofu og sjónvarpshorni. Stórir gluggar í 3 áttir. Þetta opna rými er hægt að nýta á marga vegu. Útgengt er í garðinn úr þessu rými. Parket á gólfi.
Eldhús: Sérsmíði frá Eldhúsval. Mjög rúmgott og bjart með vandaðri L-laga innréttingu ásamt eyju með helluborði. Hægt er að sitja við eyjuna. Granítsteinn á borðum og gert ráð fyrir amerískum ísskáp(fylgir)
Hjónaherbergi: Gott hjónaherbergi með hálfopnum fataskápum.
Herbergi 3 og 4: Björt og góð herbergi sem nýtast vel.
Herbergi 5: Þar sem í dag er opin setustofa við hlið hjónaherbergis var áður svefnherbergi ásamt fataherbergi. Þarna er auðvelt að koma fyrir herbergi aftur eða útbúa fataherbergi sem tengist hjónaherberginu.
Baðherbegi: Endurnýjað að hluta. Upphengt salerni, handklæðaofn og "labb-inn" sturta. Frá baðherbergi er hægt að ganga út garð með heitum potti.
Þvottahús/geymsla: Góð innrétting með pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Frá þvottahúsi er hægt að ganga í aukaíbúð.
Aukaíbúð: Fyrir aftan bílskúr er búið að innrétta snyrtilega aukaíbúð sem hentar vel til útleigu. Rúmgott svefnherbergi, eldhúskrókur, setustofa og gott baðherbergi með sturtuhorni og upphendu salerni.
Bílskúr: Bílskúrinn er 20 m2 og með heitu/köldu vatni og hita. Lagt fyrir rafbílahleðlsu, 3ja fasa.
Lóð/garður: Húsið stendur á rúmlega 1.067 m2 eiganrlóð sem er algjör sælureitur! Sólpallar í margar áttir, heitur pottur(2022), lokuð garðstofa(2018), grilleldhús með steypum borðplötum(2023) og nettum "kampavínsbar". Auk þess fjölbreyttur náttúrlegur gróður, blómastrandi gullreng, garðtjörn og beð til ræktunar. Í þessum garði ætti að vera hægt að finna sól og skjól í öllum vindáttum.
Frábært tækifæri til að eignast einbýli á einni hæð með úleigumöguleika.
Stutt er í skóla og leikskóla. Mjög rólegt og fjölskylduvænt svæði. Ýmsar gönguleiðir í fallegu umhverfi.
Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / [email protected] eða í síma 583-5000 / [email protected]
Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða [email protected]
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Margir inngangar
- Upphitun
- Hitaveita með sér mæli
- Bílastæði
- 3 bílastæði
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Bílskúr
- Verönd
- Sér garður
- Bílahleðsla
- Gæludýr leyfð
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Upprunalegt
- Vatnslögn
- Nýjar lagnir fyrir baðherbergi og þvottahúsi í viðbyggingu, annað upprunalegt
- Frárennslislögn
- Nýtt frá brunni út í götu ca 2020 og að hluta innanhúss
- Raflögn
- Tafla endurnýjuð 2026 - 3ja fasa tekið inn.
- Þak
- Þakklæðning (járn og pappi)endurnýjuð 2022
- Gluggar
- Upprunalegir en allir málaðir innan og utan 2026
- Annað
- Nokkur gler komin á tíma.
Seljandi mun klára að klæða gafl fyrir ofan garðhús.
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
