Eign í fjármögnunarferli. Tilboð hefur verið samþykkt og kaupendur vinna að fjármögnun. Vaktaðu eignina til að fá tilkynningu ef salan opnast aftur.
Til sölu

Lyngmóar 7 - íbúð 101

210 Garðabær Fastanr. 2071552 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 40
Ásett verð 93.900.000 kr. 691.458 kr./m²

Eignin

  • 135,8m² Flatarmál
  • 4 Herbergi
  • 3 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Sameiginlegur inngangur
  • Bílskúr
  • Svalir
  • Útsýni

Skráning

Fasteignanúmer
2071552
Merking
01-01-01
Tegund
Íbúð
Byggingarár
1982
Landeignarnúmer
119161
Viltu

Lýsing á eign

VILTU fasteignasala kynnir Lyngmóa 7 í Garðabæ.

Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 1. hæð í snyrtilegu, vel við höldnu fjölbýlishúsi. Innangenginn bílskúr (20 m²) er aðgengilegur úr sameigninni. Stofan opnast út á flísalagðar, rúmgóðar svalir til suðurs sem bjóða upp á sól og notalegt útiverupláss. Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúðarhlutinn 115,8 m² og bílskúrinn 20 m², samtals 135,8 m²

Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í 777-0191 eða [email protected]

Íbúðin sjálf er 115,8 m2 og á 1. hæð í 3 hæða blokk. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Á jarðhæð er geymsla og bílskúr sem eru 20 m².

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Nánari lýsing:

Forstofa með parketi, innbyggðum fataskáp og stórum spegli.
Eldhúsið er rúmgott með snyrtilegri hvítri innréttingu, flísum milli skápa og á borði og parketi á gólfi. Innbyggður ísskápur og frystir, uppþvottavél, keramik helluborð með hvítum Elica viftuháf og ofn í vinnuhæð. Borðkrókur í eldhúsinu.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi á flísalagðar svalir til suðurs. Frá svölum er hægt að ganga út í sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Barnaherbergi 1 með parketi á gólfi.
Barnaherbergi 2 með parketi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og að hluta á veggjum, hita í gólfi, hvít innrétting. Hornnuddbaðkar með sturtu. Opnanlegur gluggi.
Bílskúr/geymsla með epoxí á gólfi, kalt vatn og gönguhurð. Geymsla er innangeng frá sameign og tengist bílskúr innanhúss; gólfið í geymslu er málað og þar eru góðar hirslur og tengi fyrir þvottavél.
Athugið: Innra skipulag er lítillega breytt frá samþykktum teikningum — hurð milli bílskúrs og geymslu kemur ekki fram á teikningum.
Einkabílastæði fyrir framan bílskúr.
Í sameign er þurrkherbergi og hjólageymsla.

Húsið er byggt 1982 og hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina. Húsið er á þremur hæðum með samtals 9 íbúðum staðsett í vinsælu hverfi í Garðabænum þaðan sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, verslanir og heilsugæslu.

Nánari upplýsingar í síma 777 0191 eða [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sameiginlegur inngangur
Upphitun
Hitaveita með sameiginlegum mæli
Bílastæði
1 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskúr
  • Svalir
  • Útsýni

Staðsetning

Lyngmóar 7 - íbúð 101, 210 Garðabær

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Upprunalegt
Frárennslislögn
Frárennslislagnir voru myndaðar og að hluta fóðraðar í mars 2026.
Raflögn
Endurnýjað að hluta 2020
Þak
Hliðarþök og þakjárn voru endurnýjuð að hluta árið 2023 og ástand þaks skoðað í leiðinni.
Gluggar
Upprunalegt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2071552 Aðaleining Íbúðareign
Byggt 1982Stærð 115,8 m²Herbergi 4Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat75.150.000 kr.
Brunabótamat57.800.000 kr.
Fasteignamat86.150.000 kr.
Bílskúr 2071546 Fylgieining
Byggt 1982Stærð 20,0 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat9.790.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Þú verður að skrá þig inn til að sjá skjalalista fyrir þessa eign. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Kristján Borgar Samúelsson Löggiltur fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
93.900.000 kr.Lyngmóar 7 - íbúð 101
Hafa samband