Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Kópavogsbraut 4

200 Kópavogsbær Fastanr. 2063468 Eignarhlutur til sölu: 0%
Vakta eign
1 / 49
Ásett verð 134.900.000 kr. 867.524 kr./m²

Eignin

  • 155,5m² Flatarmál
  • 5 Herbergi
  • 4 Svefnherbergi
  • 2 Baðherbergi
  • Margir inngangar
  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2063468
Merking
01-01-01
Tegund
Íbúð
Byggingarár
1942
Landeignarnúmer
115279
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna frábært parhús á stórri lóð við Kópavogsbraut 4 á Kársnesi.

Eigendur skoða makaskipti á dýrara sérbýli á höfuðborgarsvæðinu - Eignin getur verið laus fljótlega ef þörf er á.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum fyrir eignina.

Um er að ræða skemmtilega skipulagt og mikið endurnýjað 155,6 m2. parhús með 1.081 m2 lóð til sérafnota. Frábært tækifæri til að gera allskonar skemmtilegt.
Húsið er á tveimur hæðum og var nánast algjörlega endurnýjað og stækkað á árunum 2003-2006
4 svefnherbergi, stórt alrými með mjög mikilli lofthæð, 2-3 baðherbergi, rúmgott bílastæði og risastór garður með endalaus tækifæri.

Húsið er meira og minna klætt fallegum panil og með sýnilega bita og skrautlista í flestum rýmum. Mjög fallega útfært.

Jarðhæð:
Anddyri:
Flísalagt og bjart með plássi fyrir fatahengi eða fataskáp.
Gestasnyrting: Flísalagt gólf og fallegur panill al veggjum. Upphengt salerni og nýleg nett innrétting.
Hol: Frá anddyri er gengið í rúmgott hol. Þaðan er gengið í önnur rými á hæðinni.
Eldhús Klassísk hvít innrétting með fulningahurðum og límtrésborðplötum. Ofn í vinnuhæð, innbyggða uppþvottavél og amerískan ísskáp. Heimilistæki hafa verið endurnýjuð að hluta.
Stofa/Borðstofa: Samliggjandi í mjög stóru og björtu rými. Aukin lofthæð í öllu rýminu og fallegur arinn setur mikinn svip á það. Þaðan er hægt að gang út í garðinn.
Herbergi 1: Mjög rúmgott hjónaherbergi með stórum innbyggðum fataskáp
Herbergi 2: Rúmgott og bjart herbergi.

Frá holi er gengið upp á 2. hæð um fallegan parketlagðan stiga. .

2.hæð:
Frá stiga er komið á stigapall þaðan sem gengið er í önnur rými.
Herbergi 3: Rúmgott herbergi með aukinni lofthæð og svölum til suðurs.
Herbergi 4: Gott herbergi með aukinni lofthæð.
Geymsla/Snyrting: Á milli herbergjanna er herbergi/rými sem í dag er notað sem geymsla er en á teikningum hugsað sem baðherbergi.
Loft: Meðfram súð er hægt að komast á lítið milliloft sem nýta mætti sem leiksvæði fyrir börn eða fyrir gæludýr

Kjallari: Frá holi á 1.hæð er gengið í kjallara. Þar er rúmgott og snyrtilegt rými sem er bæði baðherbergi(sturta, ekki salerni) og þvottahús. Flísar á gólfi og í sturtuklefa. Þarna er líka auka inngangur í húsið.

Bílskúr: Búið er að teikna og fá samþykktan tæplega 50m2 bílskúr við núverandi bílastæði. (Sjá teikningu í skjalasafni eignarinnar)

Skv upplýsingum frá fyrri eiganda var þetta gert á árunum 2003-2006:
Húsnæðið var stækkað og þar með voru settar nýjar klæðningar í flest alla veggi. Hluti af þakinu (yfir stofunni) var skipt yfir í nýtt. Veggurinn á milli parhúsanna var gerður eldheldur. Allt rafmagn var endurnýjað. Hiti í gólfi var settur í þremur ´mottum´ (stofunni og í miðju húsinu) og nýtt gólfefni alls staðar nema í svefnherbergjunum. Þá voru líka settar nýjar skólplagnir í samvinnu við bæjarfélagið (sem voru líka að endurnýja). Kjallarinn (þvottahús/sturtuaðstaða) var gerður með nýjum lögnum og hita í gólfi. Nýir gluggar og gluggakarmar voru settir (nema í litla glugganum fyrir ofan útidyrahurðina). Nýir stigar - upp á aðra hæð sem og niður kjallara - voru settir. Ný eldhúsinnrétting var sett og nýtt salerni á jarðhæð.

Árið 2017 var svo öllum hitaveituofnunum skipt út og árið 2024 var þakið og gluggakarmar að utan málaðir.

Einstakt tækifæri til að eignast mikið endurnýjað parhús á einstaklega stórri lóð á Kársnesi. Heildar stærð lóðar er 2033m2 og hafa eigendur skipt afnotum af lóðinni með þeim hætti að eignin sem auglýst er hér til sölu hefur einkaafnot af 1.081 m2 (sjá loftmynd með skiptingu í myndasafni)

Örstutt í skóla/leikskóla, verslun/þjónustu og náttúru(bæði ströndina og Kópavogsdalinn)

Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða [email protected] eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Margir inngangar
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
3 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
0%

Fylgir eigninni

  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Staðsetning

Kópavogsbraut 4, 200 Kópavogsbær

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt að hluta en stækkun frá 2003-2006
Vatnslögn
Endurnýjuð að mestu 2003-2006
Frárennslislögn
Endurnýjað 2003-2006
Raflögn
Endurnýjuð 2003-2006
Þak
Klæðning endurnýjuð 2003-2006
Gluggar
Flestir endurnýjaðir 2003-2006
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2063468 Aðaleining Parhús
Byggt 1942Stærð 155,5 m²Herbergi 6Byggingarefni TimburByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat95.950.000 kr.
Brunabótamat72.300.000 kr.
Fasteignamat118.550.000 kr.

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Heiðrekur Þór Guðmundsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
134.900.000 kr.Kópavogsbraut 4
Hafa samband Gera tilboð