Eign í fjármögnunarferli. Tilboð hefur verið samþykkt og kaupendur vinna að fjármögnun. Vaktaðu eignina til að fá tilkynningu ef salan opnast aftur.
Til söluEr laus strax

Hlíðarhjalli 30 - íbúð 101

200 Kópavogsbær Fastanr. 2061797 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 38
Ásett verð 64.900.000 kr. 953.010 kr./m²

Eignin

  • 68,1m² Flatarmál
  • 3 Herbergi
  • 2 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Verönd
  • Bílahleðsla
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax

Skráning

Fasteignanúmer
2061797
Merking
01-01-01
Tegund
Íbúð
Byggingarár
1988
Landeignarnúmer
114698
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna mikið endurnýjaða 68m2 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í suðurhlíðum Kópavogs.

Í dag er eignin með tvö svefnherbergi þar sem búið er að færa eldhúsið inn í alrými. Ef það hentar kaupanda betur að vera með eldhúsið þar sem það var upphaflega, og eitt svefnherbergi, kemur til greina að seljandi aðstoði við að færa eldhúsið til baka.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning - Hægt að sýna með stuttum fyrirvara flesta daga - Frábær fyrstu kaup eða til útleigu.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Íbúðin er skráð 68,1 m2 og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús/stofu saman í alrými og sér þvottahús/geymsla innan íbúðar.

Eignin er fyrir ofan götu innst í botnlanga rétt við Kópavogsdalinn. Góður garður til suðurs. Sér bílastæði.

Nýlega var lokið tasverður endurbótum á eigninni:

Ný eldhúsinnrétting og tæki - Baðherbergi algjörlega endurnýjað - Gólfefni endurnýjuð - Innihurðir endurnýjaðar - Allir ofnar endurnýjaðir á síðustu árum.

Nánari lýsing:

Frá bílastæði er gengið upp nokkur þrep og þaðan um sérinngang í góða forstofu.
Forstofa:
Rúmgóð með útskoti fyrir fataskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús/Stofa/Borðstofa: Samliggjandi í opnu og björtu rými með stórum gluggum til suðurs. Ný eldhúsinnrétting með innbyggðri uppþvottavél. Nýr bakaraofn og spansuðu helluborð frá Electrolux.
Baðherbergi: Ný endurgert. Flísalagt í hólf og gólf. "walk-in" sturta. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi I: Bjart og rúmgott herbergi með útskoti fyrir þrefaldan fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart og gott herbergi. Þetta herbergi var upphaflega eldhús og það er hægt að færa eldhúsið aftur til baka ef það hentar betur(raf-og vatnslagnir enn til staðar)
Þvottahús/Geymsla: Innan íbúðar er þvottahús með tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Einnig eru lagnir fyrir ræstivask. Geymslan inn af þvottahúsinu er góð og rúmar t.d. vel skápa eða hillur. Eins er veggpláss sem má nota t.d til að hengja snúrur.
Garður: Gróinn og skjólgóður garður sem snýr í suður og austur.
Bílastæði: Eitt hellulagt bílastæði með snjóbræðslu fylgir íbúðinni. Frekar auðvelt að koma upp rafbílahleðslu.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri til að kaupa mikið endurnýjaða eign á vinsælum stað í suðurhlíðum Kópavogs.

Nánari upplýsingar um eignina veita Viltu fasteignir í síma 583-5000 / [email protected]
Einnig er hægt er að bóka skoðun beint hjá eiganda í síma 845-9000 eða [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sér inngangur
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
1 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Verönd
  • Bílahleðsla
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax

Staðsetning

Hlíðarhjalli 30 - íbúð 101, 200 Kópavogsbær

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Upprunalegt
Frárennslislögn
Upprunalegt
Raflögn
Endurnýjuð að hluta 2026
Þak
Upprunalegt
Gluggar
Upprunalegt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2061797 Aðaleining Íbúðareign
Byggt 1988Stærð 68,1 m²Herbergi 2Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat56.300.000 kr.
Brunabótamat40.600.000 kr.
Fasteignamat66.550.000 kr.

Skjöl

Þú verður að skrá þig inn til að sjá skjalalista fyrir þessa eign. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Kristján Borgar Samúelsson Löggiltur fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
64.900.000 kr.Hlíðarhjalli 30 - íbúð 101
Hafa samband