Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Skriðusel 5

109 Reykjavíkurborg Fastanr. 2054227 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 68
Ásett verð 220.000.000 kr. 748.045 kr./m²

Eignin

  • 294,1m² Flatarmál
  • 9 Herbergi
  • 6 Svefnherbergi
  • 3 Baðherbergi
  • Margir inngangar
  • Bílskúr
  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2054227
Merking
01-01-01
Tegund
Einbýli
Byggingarár
1979
Landeignarnúmer
112708
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna: Fallegt, bjart og mikið endurnýjað 294m2 einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað í Seljahverfi. Tvær aukaíbúðir. Miklir tekjumöguleikar í útleigu!

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn fyrir eignina

Skriðusel 5 er mikið endurnýjað 294m2 einbýlishús með tvær aukaíbúðir og getur því hentað bæði stórfjölskyldu eða til að hafa talsverðar leigutekur.
Á neðri hæð hússins er algjörlega endurnýjuð 4ra herbergja íbúð. Á efri hæð hússins er nýinnréttuð rúmgóð 3ja herbergja íbúð.
Bílskúr hefur verið breytt í 2ja herbergja íbúð með svefnherbergi á efri hæð.
Auðvelt er að nýta íbúðir á jarðhæð og efri hæð saman og vera með a.m.k. 5 svefnherbergi.


Eignin er skráð alls 294,1m2 og skiptist í:
Íbúð á jarðhæð 163,7m2
íbúð á efri hæð skráð 82,6m2 en gólfflötur er mun stærri þar sem hluti er undir súð.
Bílskúr 47,8m2 en er innréttaður sem íbúð með svefnherbergi á efri hæð og því eru m2 í raun fleiri.


Nánari lýsing:
Jarðhæð:
Anddyri: Að utan er gengið í anddyri þaðan sem gengið er í íbúð á jarðhæð og um steyptan stiga til íbúðar á efri hæð.Flísar á gólfi.
Hol: Frá forstofu er komið í rúmgott og bjart hol. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er opið inní stofu/borðstofu. Sett var ný innrétting í eldhúsið 2017 . Ofn og combiofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og gert ráð fyrir amerískum ísskáp. Skagi sem hægt er að sitja við. Hiti í gólfi.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar með gluggum á þrjá vegu og hægt að ganga beint út á nýsmíðaðan sólpall.
Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf. Labb-inn sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Hiti í gólfi.
Svefnherbergi I: Mjög rúmgott með glugga. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Einnig mjög rúmgott og bjart. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi III: Bjart og gott herbergi. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Góðir skápar. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Efri hæð var innréttuð árið 2021.
Hol: Þegar komið er upp stigann er komið í gott hol sem nýtt er sem vinnuaðstaða í dag. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er opið inní stofu/borðstofu. Innrétting sett upp árið 2021 með límtré á borðum. Ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Eyja sem hægt er að sitja við.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar með gluggum á tvo vegu og hægt að ganga út á svalir til suðvesturs.
Baðherbergi: innréttað árið 2021. Flísalagt í hólf og gólf. Gott sturtuhorn og frístandandi baðkar, upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi I: Mjög rúmgott með glugga. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi en væri hægt að nota sem svefnherbergi. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfið.
Svalir: Út frá stofu eru góðar svalir til suðvesturs. Frábærar fyrir grillið.

Aukaíbúð í bílskúr. Sérinngangur.
Bílskúr hefur verið innréttaður sem fín 2ja herbergja íbúð.
Fullbúið eldhús og gott baðherbergi.
Svefnherbergið er á efri hæð skúrsins og er með glugga í stafni.

Garður: Umhverfis húsið er góður garður með stórum nýsmíðuðum sólpalli og skjólgirðingum, sannkallaður sælureitur.
Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu er fyrir framan bílskúr.

Geymsluskúr: 8,4fm sett upp haustið 2025.

Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / [email protected] eða í síma 583-5000 / [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Margir inngangar
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
2 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskúr
  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Staðsetning

Skriðusel 5, 109 Reykjavíkurborg

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Mikið endurnýjaðar 2017 til 2021 þar á meðal allir ofnar nýir.
Frárennslislögn
Upprunalegt
Raflögn
Endurnýjuð að mestu 2017
Þak
Yfirfarið og málað 2020
Gluggar
Endurnýjaðir að hluta, aðrir yfirfarnir.
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Einbýli 2054227 Aðaleining Einbýlishús
Byggt 1979Stærð 246,3 m²Herbergi 5Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat139.050.000 kr.
Brunabótamat80.650.000 kr.
Fasteignamat166.650.000 kr.
Bílskúr 2054228 Fylgieining
Byggt 1980Stærð 47,8 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat20.800.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Heiðrekur Þór Guðmundsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
220.000.000 kr.Skriðusel 5
Hafa samband Gera tilboð