Árskógar 6 - íbúð 302
Eignin
- 110,8m² Flatarmál
- 4 Herbergi
- 3 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Sameiginlegur inngangur
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Er laus strax
- Aldurstengd búseta
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2053891
- Merking
- 01-03-02
- Tegund
- Íbúð
- Byggingarár
- 1992
- Landeignarnúmer
- 112543
Lýsing á eign
Viltu fasteignir kynna fallega rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Árskóga 6. Eign fyrir 60 ára og eldri.
Innangengt er í Árskóga, Félagsmiðstöð Reykjavíkurborgar með fjölbreyttu félagsstarfi og mötuneyti.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum fyrir eignina.
Getum sýnt íbúðina með stuttum fyrirvara flesta daga. Hafið samband við Heiðrek Guðmundsson, löggiltan fasteignasala í 845-9000 eða [email protected] til að bóka skoðun.
Íbúðin er mjög björt og rúmgóð. Hún skiptist í 2-3 svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og hol. Út frá stofu eru góðar svalir. Sérgeymsla í kjallara.
Falleg viðarparket á gólfi. Ný búið að pússa og lakka parket og íbúðin er öll nýmáluð. Húsvörður er starfandi í húsinu.
Eignin er laus við kaupsamning og hægt að skoða með stuttum fyrirvara.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 110,8 m2, þar af íbúð 104,5 m2 og geymsla 6,3 m2.
Skápar og innréttingar eru úr beyki og hvítum harðplasti að hluta í eldhúsi.
Nánari lýsing:
Frá sameign er gengið í gott hol með fataskáp.
Eldhús með snyrtilegri U-laga innréttingu, ofn í vinnuhæð og uppþvottavél. Nett eldhúsborð er við hluta innréttingarinnar. Eldhúsið er opið að borðstofu.
Stofa/borðstofa eru mjög rúmgóðar og bjartar í opnu rými með útgengi á svalir.
Herbergi 1: Stór og bjart herbergi með innbyggðum fataskáp.
Herbergi 2: Bjart herbergi með fallegum útskotsglugga. Innbyggður fataskápur.
Herbergi 3: Stór og bjart herbergi með stórum gólfsíðum glugga. Þetta herbergi er hægt að nýta á marga vegu, t.d. sem svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, hobbyherbergi, skrifstofu o.m.fl.
Baðherbergi er flísalagt að hluta og dúkur á gólfi. Gott sturtuhorn og snyrtileg innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir út frá stofu. Rúmlega 6m2 til suðausturs.
Geymsla: Í sameign er sér 6,3m2 geymsla sem fylgir íbúðinni.
Innangengt er í félagsmiðstöðina Árskóga þar sem er skipulagt félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar og hægt er að fá keyptan mat og síðdegiskaffi virka daga. Stutt er í helstu þjónustu í Mjóddinni, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fl. Fjöldi bílastæða er á lóð, ásamt hleðslustæðum fyrir íbúa.
Góð eign á frábærum stað, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Kvöð er á eigninni um að kaupendur skulu vera 60 ára eða eldri og félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík - núverandi félagsgjald er kr. 5.800- á ári.
Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða [email protected] eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / [email protected]
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sameiginlegum mæli
- Aldurstengd búseta
- 60 ára og eldri
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Svalir
- Lyfta
- Útsýni
- Aðgengi fyrir hjólastóla
- Gæludýr leyfð
- Er laus strax
- Aldurstengd búseta
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Upprunalegt
- Vatnslögn
- Upprunalegt
- Frárennslislögn
- Upprunalegt
- Raflögn
- Upprunalegt
- Þak
- Upprunalegt
- Gluggar
- Upprunalegt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
