Eign í fjármögnunarferli. Tilboð hefur verið samþykkt og kaupendur vinna að fjármögnun. Vaktaðu eignina til að fá tilkynningu ef salan opnast aftur.
Til sölu

Vesturberg 43

111 Reykjavíkurborg Fastanr. 2050684 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 49
Ásett verð 124.500.000 kr. 604.369 kr./m²

Eignin

  • 206,0m² Flatarmál
  • 7 Herbergi
  • 6 Svefnherbergi
  • 2 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Bílskúr
  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2050684
Merking
04-01-01
Tegund
Íbúð
Byggingarár
1975
Landeignarnúmer
112079
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynna gott endaraðhús á tveimur hæðum við Vesturberg 43, 111 Reykjavík

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum fyrir eignina.

Eigendur skoða uppítöku á minni eign á höfuðborgarsvæðinu eða sumarhúsi að hámarki í 1-1,5 tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík

Um er að ræða vel skipulagt 206fm. endaraðhús ásamt um 30m2 óskráðu rými á 2.hæð. Heildarstærð er því um 235m2 og þar af er bílskúr 36.fm.
Húsið er á tveimur hæðum og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Húsið er nýmálað að utan.
5-6 svefnherbergi, rúmgott bílastæði, stór garður með sólpalli til vestur. Ofan á bílskúr er óskráð ca 30.fm.viðbygging sem er ekki inni í fermetrafjölda hússins. Gott útsýni frá efri hæð hússins.


Nánari lýsing, jarðhæð:
Anddyri:
Flísalagt og með stórum innbyggðum fataskáp.
Gestasnyrting: Flísalögð í hóf og gólf. Upphengt salerni .
Hol: Frá anddyri er gengið í rúmgott hol. Þaðan er gengið í önnur rými á hæðinni. Þar er einnig rúmgóður innbyggður fata- og geymsluskápur.
Eldhús Vönduð U-laga innrétting með ofn í vinnuhæð, innbyggða uppþvottavél og pláss fyrir amerískan ísskáp. Heimilstæki hafa verið endurnýjuð að hluta. Góður eldhúskrókur er við glugga í enda eldhúss..
Stofa/Borðstofa: Samliggjandi í björtu og góðu rými. Þaðan er gengið út á sólpall til vesturs og þaðan áfram út í stóran garð.
Herbergi 1: Á hæðinn er rúmgott herbergi.

Frá holi er gengið upp á 2. hæð um fallegan parketlagðan stiga. Stór gluggi er í stiganum.

Frekari lýsing 2.hæð:
Frá stiga er gengið í gott hol og þaðan í önnur rými hæðarinnar. Í holi er stór fjórfaldur innbyggður fata- og geymsluskápur.
Baðherbergið: Það er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting með handlaug, baðkar og sér sturta. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús:Flísalagt gólf og stór og góð innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Ræstivaskur. Þvottahúsið er hluti af óskráða rýminu sem er ofna á bílskúrnum.
Herbergi 2, rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp
Herbergi 3: Bjart og gott herbergi.
Herbergi 4: Bjart og gott herbergi sem hefur verið sameinað upprunalegu þvottahúsi. Góður innbyggður fataskápur.
Viðbygging ofan á bílskúr. Bætt við árið 2009 og er um 30m2. Þvottahúsið er í hluta rýmisins en restin er rúmgott og bjart rými með útgengi á góðar svalir til vesturs með miklu útsýni.
Bílskúr: 36m2. Steypt gólf, hiti og heitt/kalt vatn, vaskur. Hægt er að ganga í garðinn frá bílskúrnum.
Aðkoma að húsinu er góð, steypt rúmgott bílaplan.
Þar sem húsið er endaraðhús er nægt pláss til að stækka sólpall, koma fyrir leiktækjum og/eða til að geyma t.d. hjólhýsi/tjaldvagn og kerru.

Nýlega er búið að endunýja þak og gluggar hafa flestir verið endurnýjaðir síðustu ár. Búið að skipta um 90% ofna í húsinu. Nýlegur geymsluskúr á palli.

Vel staðsett fjölskyldu hús á góðum stað í efra Breiðholti þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, rækt og alla almenna þjónustu. Einnig stutt í göngustíga í skóglendi og niður í Elliðarárdal.

Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða [email protected] eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / [email protected]

Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sér inngangur
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
4 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskúr
  • Svalir
  • Verönd
  • Sér garður
  • Gæludýr leyfð

Staðsetning

Vesturberg 43, 111 Reykjavíkurborg

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Upprunalegt
Frárennslislögn
Upprunalegt
Raflögn
Upprunalegt
Þak
Klæðning endurnýjuð nýlega
Gluggar
Flestir endnurnýjaðir síðustu ár
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2050684 Aðaleining Raðhús
Byggt 1975Stærð 169,9 m²Herbergi 7Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat93.550.000 kr.
Brunabótamat89.050.000 kr.
Fasteignamat110.350.000 kr.
Bílskúr 2050688 Fylgieining
Byggt 1975Stærð 36,1 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat12.800.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Þú verður að skrá þig inn til að sjá skjalalista fyrir þessa eign. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Heiðrekur Þór Guðmundsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
ViltuKópavogur, 200
124.500.000 kr.Vesturberg 43
Hafa samband