Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til söluEr laus strax

Hrísrimi 9 - íbúð 303

112 Reykjavíkurborg Fastanr. 2040046 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 24
Ásett verð 65.800.000 kr. 605.893 kr./m²

Eignin

  • 108,6m² Flatarmál
  • 3 Herbergi
  • 2 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Sameiginlegur inngangur
  • Bílskýli
  • Svalir
  • Útsýni
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax

Skráning

Fasteignanúmer
2040046
Merking
02-03-03
Tegund
Íbúð
Byggingarár
1991
Landeignarnúmer
109523
Viltu

Lýsing á eign

Viltu fasteignir kynnir fallega, rúmgóða og bjarta 2ja-3ja herbergja íbúð við Hrísrima 9, Grafarvogi
Aukin lofthæð í hluta, vestur svalir ,mikið útsýni og stæði í bílageymslu.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum eignarinnar.

Íbúðin sjálf er skráð 75,5m2 en er að hluta undir súð og því eru nýtanlegir fermetrar fleiri. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Íbúðin skiptist í forstofu/gang, 1-2 svefnherbergi, stofu með vestur svölum, baðherbergi og eldhús. Í kjallara er sér bílastæði í bílageymslu og innaf því geymsla sem fylgir íbúðinni, samanlagt skráð 33,1m2

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Frá sameign er gengið í góða forstofu/gang með tvöföldum innbyggðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð samliggjandi við eldhús. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri endurnýjaðri L-laga innréttingu. Innbyggð uppþvottavél. Frá stofu er gengið út á góðar vestursvalir íbúðarinnar. Fallegt útsýni til Esju og yfir sundin blá.
Baðherbergi: Fallega endurnýjað flísalagt gólf. Veggir málaðir og/eða með veggfóðri. Sturtuklefi í horni og vaskaskápur með handlaug. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.
Hjónaherbergi : Gott og bjart herbergi með harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Í rými sem teiknað er sem geymsla á teikningu er búið að koma fyrir barnaherbergi.
Háaloft: Yfir hluta íbúðar er risloft sem nýtist vel sem geymsla.
Bílageymsla: Eigninni fylgir sér stæði í lokaðri bílageymslu.
Geymsla: Við hlið bílastæðis í í bílageymslu er sér geymsla fyrir íbúðina. Mjög þægilegt aðgengi.
Hjólageymsla: Sameiginleg hjólageymsla fyrir íbúa er á 1.hæð

Frábært tækifæri til að eignast 2ja-3ja herbergja, mikið endurnýjaða íbúð með frábæru útsýni
Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, heilsugæslu og matvörubúðir. Gróið og fallegt hverfi.

Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / [email protected] eða í Viltu fasteignir í 583-5000 / [email protected]

    Almennar upplýsingar

    Inngangur
    Sameiginlegur inngangur
    Upphitun
    Hitaveita með sameiginlegum mæli
    Bílastæði
    1 bílastæði
    Eignarhlutur til sölu
    100%

    Fylgir eigninni

    • Bílskýli
    • Svalir
    • Útsýni
    • Gæludýr leyfð
    • Er laus strax

    Staðsetning

    Hrísrimi 9 - íbúð 303, 112 Reykjavíkurborg

    Ástand og gallar

    Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
    Burðarvirki
    Upprunalegt
    Vatnslögn
    Upprunalegt
    Frárennslislögn
    Upprunalegt
    Raflögn
    Upprunalegt
    Þak
    Klæðning endurnýjuð 2025
    Gluggar
    Stendur til að endurnýja að hluta 2026-Búið að safna fyrir því.
    Annað
    Ekkert skráð

    Matseiningar

    Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
    Íbúð 2040046 Aðaleining Íbúðareign
    Byggt 1991Stærð 75,5 m²Herbergi 3Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
    Húsmat57.180.000 kr.
    Brunabótamat43.450.000 kr.
    Fasteignamat63.400.000 kr.
    Bílskúr 2040055 Fylgieining
    Byggt 1991Stærð 33,1 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
    HúsmatÓskráð
    Brunabótamat6.490.000 kr.
    FasteignamatÓskráð

    Skjöl

    Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

    Föst gjöld

    Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

    Eigendur eignar

    Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
    Hafa samband
    Heiðrekur Þór Guðmundsson Fasteignasali Fasteignasali á vegum Viltu
    ViltuKópavogur, 200
    65.800.000 kr.Hrísrimi 9 - íbúð 303
    Hafa samband Gera tilboð